Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013
Fyrirlestur um fyrstu skrefin í matjurtarækt
25.4.2013 | 23:25
Hér á eftir hef ég sett inn glærur frá fyrirlestri sem ég hélt miðvikudaginn 24. apríl 2013 á vegum matjurtaklubbs Garðyrkjufélags Íslands
Til að kynna mig, get ég upplýst að ég byrjaði af krafti í garðyrkju árið 1986
Fyrsti garðurinn minn var í litlu fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur
Þar óx stór Hlynur og frekar ómerkilegar illgresistegundir. Ég kom honum úr órækt í fallegan lítinn garð, með dyggri aðstoð móður minnar. Í garðinum var ég nær engöngu með fjölærar blómplöntur, fjölæra runna, lauka og klifurjurtir sem ég hef mikið dálæti á
Í garðinum var svolítill rabarbari og ég keypti mér rifsberjarunna og fékk síðustu árin um 6 krukkur af hlaupi á hverju ári
Ég er núna í efra Breiðholti með lítinn garð, ca. 150 fm.Þar er garðskáli, geymsluskúr, tjörn með vatnajurtum og gullfiskum, Gullregn, skrauteplatré, kirsuberjatré, margir runnar, nokkrar klifurplöntur, fjölærar plöntur og laukar, en auk þess er ég með jarðarber í kössum og oftast nær með salat í pottum á sumrin
Áhugi á matjurtarækt vaknaði 2006, en þá var einungis hægt að fá land undir kartöflugarð langt fyrir utan borgina og þar að auki allt of stórt fyrir mig. Ég var svo heppin að geta verið með í grendargarðaverkefni Garðyrkjufélagsins og hef verið með í Smálöndum frá upphafi
Þar hef ég ræktað, kartöflur, brokkoli, blómkál, grænkál, gulrætur, salat, rabarbara og í fyrra setti ég niður aspas plöntur. Ég er líka með litunarplöntur í matjurtagarðinum, en jurtalitun er eitt af áhugamálum mínum.
Ég er sem sagt ekki garðyrkjufræðingur, heldur áhugamanneskja um ræktun. Það kann að vakna sú spurning, af hverju ég er að halda fyrirlestur um matjurtarækt, hafandi aðeins ræktar matjurtir í nokkur ár, en þá er því til að svara að það eru fáir sem hafa ræktað stærri næpu en ég. Og það hlýtur að vera merki um einstaka hæfileika mína á þessu sviðið
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta spurningin sem vaknarâ¦
25.4.2013 | 23:07
Hversu stór á garðurinn að vera?
Það má reikna með um 10 m2 fyrir hvern fullorðinn einstakling, þó er rétt að athuga að þetta fer mjög eftir því hvað fólk ræktar.
Gulrætur taka t.d. miklu minna pláss en kálhaus. Það er gott að hafa í huga að það þarf annað hvort að borða grænmetið, þegar kemur að uppskeru, eða geyma það.
Áður en sett eru niður 3 tonn af kartöflum er rétt að velta fyrir sér hversu stórar og góðar geymslur þarf undir magnið sem upp kemur?
Hver garður í grenndargörðunum er 25 m, sem ætti alla jafna að vera gott fyrir tvo fullorðna og eitt barn
Betra að byrja smátt
Teikna garðinn upp á rúðustrikað blað
Oft gott að láta beðin liggja í austur-vestur til að nýta birtuna sem best og koma í veg fyrir of mikinn skugga
Ef landið hallar, þá er betra að beðin liggi þvert á hallann svo vatn renni ekki of hratt af því
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar á matjurtagarðurinn að vera?
25.4.2013 | 23:03
Velja sólríkan stað (matjurtir þurfa 6-8 tíma af sólskini á dag)
Frjóan jarðveg, ekki of blautan, ekki of þurran
Skjól er gott, mjög gott
Ekki undir trjám eða nálægt stórum rótum
Nálægt húsinu, svo auðvelt sé að ná sér í grænmeti, reita arfa og fylgjast með ástandinu
Getur verið sniðugt að hafa salat í pottum, ef garðurinn er fjarri heimilinu
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvaða áhöld þarf?
25.4.2013 | 19:05
Góð verkfæri eru nauðsynleg. Það getur verið full ástæða til að fá sé vönduð verkfæri því þau þurfa að endast vel. Verkfæri ætti að hugsa vel um, skola mold af málmi og tré og þurrka vel.
Stikur/langar mjóar spýtur og snæri - til þess að merkja beðin og stígana
Stunguskóflu og/eða gaffal til að stinga upp
Hrífu (ekki grashrífu) til að jafna beð og brjóta upp jarðveginn
Handverkfæri skóflu og klóru til að planta út og hreinsa illgresi
Sigti til að sigta grjót
Vökvunarkönnu með dreifara og/eða slöngu með góðum stút til að vökva
Hnjáhlífar til að verða ekki illt
Hanska og handáburð til að hlífa höndunum
Ekki verra að hafa smááhöldin í fötu
Ef matjurtagarðurinn er fjarri heimilinu, getur verið gott að taka með sér nesti
Og svo er ákaflega gott að hafa tissue pakka til að þurrka sultardropana þegar kuldaboli blæs
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jarðvegurinn
25.4.2013 | 18:55
Jarðvegurinn getur verið: Sendinn. Sendin mold er létt og heldur illa á vatni, þiðnar, þorna og hlýnar hratt
Bæta með moldarjörð, húsdýraáburði
Nota 3 hjólbörur í 10 fermetra garð
Ef jarðvegurinn er leirkenndur þá klessist hann mjög saman þegar hann er blautur. Leirkennd mold er þung og þétt, frekar köld og þiðnar seint á vorin
Bæta með því að blanda grófum sandi eða vikri. Ekki nota fíngerðan pússningasand, hann gerir ekki gagn
2 hjólbörur í 10 fermetra og kalk (ef notaður er skeljasandur þá þarf ekki kalk aukalega)
Moldarkenndur eða mó jarðvegur er mjög frjósamanur, en svipar samt mjög til leikennds jarðvegs, hann er frekar kaldur og þiðnar seint
Bæta grófum sandi í hann til að létta hann
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jarðvegsvinna
25.4.2013 | 18:49
Allra best að vinna moldina á haustin
Nota stungskóflu eða gaffal
Best að vinna í rakri mold, en alls ekki blautri, ef moldin klessist saman þá er hún of blaut
Stinga upp efsta lag moldarinnar (15-25 sm) - ekki meira
Hreinsa steina, nota sigti til að ná smærri steinum
Raka moldina vel í nokkrar áttir til að brjóta upp köggla og raka saman smærri steinum
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áburður
25.4.2013 | 18:46
Það getur verið gott að bæta jarðveginn með því að setja lífrænt efni í hana, t.d. skít og safnhaugamold. Það er reyndar mín skoðun að það sé tæplega hægt að nota of mikinn skít. En skíturinn, venjulega hrossatað, þarf að vera gamall og vel niður rigndur.
Vinna 5-10 sm lag ofan í efstu moldina og láta sitja í 3 vikur áður en plantað eða sáð er
Það má líka nota skolaðan þara og þangi, moltu eða tilbúinn áburð 3 vikum fyrir útplöntun
Tilbúinn áburður eins og Blákorn þarf uþb 1 bolla á hverja 10 fermetra
Sýrustig jarvegsins þarf að vera rétt. Bæta við kalki eða sýru eftir því hvort þarf að laga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að hækka eða lækka sýrustig jarðvegsins
25.4.2013 | 18:40
Það er betra að fara varlega og líta á þetta sem langtíma verkefni en að ætla að leiðrétta sýrustigið í einni umferð.
Flest grænmeti vill jarðveg sem er á bilinu 6-7
Kartöflur vilja súran jarðveg hægt að minnka kláða með því að sýra jarðveg, allavega á ekki að bera kalk á jarðveg þar sem ætlunin er að rækta kartöflur
Til að lækka sýrustig er notað kalk
Til þess að auka sýrustig um 1
Prófið að nota 100 grömm af kalki á hvern fermetra ef jarðvegurinn er sendinn
Þrefalt það magn, 300 grömm, ef jarvegurinn er leirkenndur
Tvöfalt það magn, 200 grömm, ef jarðvegurinn er mitt á milli, moldarjarðvegur
Sveppamassi gerir jarðveginn basískari
Til að hækka sýrustig er notaður brennsteinsáburður
Til að minnka sýrustig um 1
Prófið að nota 35 grömm á hvern fermetraer jarðvegur er sendinn
Þrefalt það magn fyrir annan jarðveg.
Það þarf að raka þetta vel í moldina.
Sag, laufmold og mómold gerir jarðveg súrari
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skipulag matjurtagarðsins
25.4.2013 | 18:37
Beð eru höfð allt að 120 sm breið. Ástæða þess að þau eru ekki breiðari er sú að þá er hægt að komast að plöntunum frá báðum hliðum og reita arfa
Lengd beðanna fer eftir aðstæðum, þess vegna lengd þess efnis sem notað er
Hæð að minnsta kosti 20-30 sm, það er mokað uppúr stígunum og upp í beðin
Breidd stíga að minnsta kosti 30-40 sm, fæstir tíma að hafa þá breiðari, en þeir mega alveg vera 60 sm, en það er sú breidd sem þarf til að geta gengið auðveldlega á milli
Upphækkuð beð eru höfð svipuð að stærð
Ef ástæða þykir þá má alveg bregða út af þessum stærðum
Ef ætlunin er að setja boga yfri beðin til þess að strengja akrýldúk, plast eða káldúk yfir beðin þá er heppilegt að nota rafmagnsrör. Eitt rör er sagað í tvennt og þá fæst heppileg lengd til að spenna í boga yfir beðin
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað á að rækta?
25.4.2013 | 17:38
Hefðbundnar íslenskar matjurtir sem auðvelt er að rækta
Kartöflur
Rófur rauðrófur, gulrófur
Gulrætur
Kál hvítt, grænt, rautt
Brokkoli
Blómkál
Hnúðkál
Sellerí
Salat
Spínat
Radísur
Nokkrar sem ekki voru ræktaðar í gamla daga
Beðja
Laukur
Hvítlaukur
Baunir (beans)
Ertur (peas)
Aspas
Jordskokker/Jerusalem artichoke
Kryddjurtir
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)